Guðmundur J. Guðmundsson: Síðasta þorskastríðið - útfærsla fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur

Á þeim degi sem þetta er skrifað er þess minnst í íslenskum og breskum fjölmiðlum að 32 ár eru liðin frá því að verulega sló í brýnu milli Íslendinga og Breta í síðasta þorskastríðinu. Þann 11. desember 1975 veittu tveir breskir dráttarbátar varðskipinu Þór fyrirsát þar sem það leitaði vars í vondu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristján Guy Burgess
Format: Article
Language:English
Published: University of Iceland 2007-12-01
Series:Stjórnmál og Stjórnsýsla
Online Access:http://www.irpa.is/article/view/973
Description
Summary:Á þeim degi sem þetta er skrifað er þess minnst í íslenskum og breskum fjölmiðlum að 32 ár eru liðin frá því að verulega sló í brýnu milli Íslendinga og Breta í síðasta þorskastríðinu. Þann 11. desember 1975 veittu tveir breskir dráttarbátar varðskipinu Þór fyrirsát þar sem það leitaði vars í vondu veðri í Seyðisfirði. Helgi Hallvarðsson skipherra lýsti því að dráttarbátarnir hafi ætlað að sökkva Þór og Helgi fyrirskipaði að fallbyssuskoti skyldi skotið að herskipunum. Þetta var eina fasta skotið sem hleypt var af í síðasta þorskastríðinu og færði deilurnar á nýtt stig. Íslenskum stjórnvöldum þótti atvikið svo alvarlegt að þau kröfðust þess að málið yrði tekið fyrir hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Helgi skipherra hafði ekki heimild til að hleypa af skoti en sagði síðar: "Nauðsyn brýtur stundum lög."
ISSN:1670-6803
1670-679X